Æfingagjöld yngri flokka í knattspyrnu hjá FH 2020 – 2021
Flokkur (fæðingarár) | Verð – Allt tímabilið |
2.flokkur (2002-2004) | 133.000 kr. |
3.flokkur (2005-2006) | 133.000 kr. |
4.flokkur (2007-2008) | 125.000 kr. |
5.flokkur (2009-2010) | 125.000 kr. |
6.flokkur (2011-2012) | 105.000 kr. |
7.flokkur (2013-2014) | 100.000 kr. |
8.flokkur eldri (2015) | 66.000 kr. |
8.flokkur yngri (2016-2017) | 36.000 kr. |
Fyrirspurnir um æfingagjöld og skráningu má senda á hildur@fh.is
Skráning og greiðslur æfingagjalda fara fram í gegnum Sportabler – https://www.sportabler.com/shop/FH/?category=F%C3%B3tbolti
Þeir iðkendur sem eru að byrja í fótbolta hjá okkur þurfa að hafa samband við arni@fh.is til að fá aðgang að Sportabler appinu.
Hagstæðast og þægilegast er að skrá iðkendur allt árið. Sé greitt fyrir stök tímabil bætist 20% álag ofan á heildaræfingagjöldin, og þeim síðan skipt niður.
Barna- og unglingaráð bendir á að hagstæðast er fyrir forráðamenn iðkenda á eldra ári í 8. flokki að skipta greiðslum í 2 tímabil (sept-des og jan-ágú) þar sem möguleiki er að nýta frístundastyrk frá 1. janúar 2020 fyrir iðkendur fædda 2015.
Skipta má greiðslum niður á allt að 12 mánuði.
Barna- og unglingaráð FH hvetur foreldra/forráðamenn eindregið til að kynna sér reglur sveitarfélaga um frístundsstyrk/hvatapeninga. Hægt er að nýta styrkinn strax við skráningu og því er best að ljúka skráningu fyrr en síðar. Fjárhæð styrksins er mismunandi milli sveitarfélaga.
Reglur Hafnarfjarðarbæjar má finna hér:
https://www.hafnarfjordur.is/ibuar/ithrottir-og-utivera/fristundastyrkir/
EINUNGIS VERÐUR HÆGT AÐ VELJA AÐ GREIÐA ALLT ÁRIÐ TIL 5.nóvember.
Greiðsla æfingagjalda er forsenda/skilyrði fyrir þátttöku á æfingum hjá FH og þeim mótum sem iðkendur fara á fyrir hönd félagsins. Þjálfarar skrá mætingar á hverja æfingu. Iðkendur með ógreidd æfingagjöld fá ekki að keppa fyrir hönd FH.
Mikilvægt er að hafa samband við Barna- og unglingaráð FH ef um fjárhagserfiðleika er að ræða og finna úrlausn sem leiðir til áframhaldandi þátttöku iðkandans.
Reglur varðandi endurgreiðslu æfingagjalda:
Sé iðkandi skráður niður á þrískipt tímabil (þrjár annir) verða æfingagjöld vegna yfirstandandi annar ekki endurgreidd.
Sé iðkandi skráður allt árið en hætti síðan að æfa, fást æfingagjöld endurgreidd
hlutfallslega (1/3 eða 2/3) af fullu árgjaldi. Greiða þarf æfingagjöld út yfirstandandi önn.
Dæmi: Iðkandi í 5. flokki er skráður allt árið en hættir að æfa í nóvember. Viðkomandi þarf þá að greiða til áramóta eða 40.000, en fær niðurfelld æfingagjöld eftir það.
Til að stöðva greiðslu frístundastyrks til FH þarf að senda tölvupóst á hildur@fh.is
Kjósi iðkandi að hætta æfingum verður úrsögn að berast með tölvupósti á netfangið burfotbolti@fh.is
Það er á ábyrgð forráðamanna að tilkynna úrsögn; tilkynning til þjálfara iðkendans er ekki tekin gild.
Ekki er heimilt að endurgreiða það sem greitt hefur verið með frístundastyrk Hafnarfjarðarbæjar.