Halldór Ingi Jónasson framlengir við FH

Halldór Ingi Jónasson framlengir við FH

Halldór Ingi Jónasson hægri hornamaður FH hefur framlengt samning sinn um tvö ár.

Þetta eru gleðitíðindi fyrir okkur FH-inga enda Halldór Ingi búinn að spila vel síðastliðin ár og verið einn af lykil leikmönnum liðsins.

 Halldór Ingi er fæddur 1995, uppalinn FH-ingur, mikill karakter og baráttujaxl sem á eftir að gleðja okkur áfram næstu árin.

 Til hamingju með samninginn Halldór Ingi og FH

Aðrar fréttir