ÍSAK RAFNSSON FRAMLENGIR

ÍSAK RAFNSSON FRAMLENGIR

Ísak Rafnsson stórskytta og varnarjaxl FH-inga hefur framlengt samning sinn við félagið um tvö ár. Ísak hefur verið eftirsóttur frá því að síðasta tímabili lauk og hafa félög hérlendis sem og erlendis reynt að klófesta drenginn. Ísak ákvað hinsvegar að halda tryggð við sitt uppeldisfélag og leika áfram með FH.
Ísak var einn besti varnarmaður Olísdeildarinnar síðasta tímabil og var valinn í æfingahóp A landsliðs karla í lok tímabilsins.

Á meðfylgjandi mynd má sjá Ísak Rafnsson og Ásgeir Jónsson formann handknattleiksdeildar FH eftir undirskriftina í kvöld.

Aðrar fréttir