Í íþróttahúsi Kaplakrika er stór veislusalur (Sjónarhóll) sem tekur 280 manns í sæti. Hægt er að skipta honum í 2 sali og tekur vestari 90 – 100 manns í sæti en salurinn nær bílastæðunum að austan tekur 150 manns í sæti.
Rúmgott eldhús og bar fylgir útleigu, einnig borðbúnaður fyrir 250 manns. Einnig eru 2 ísskápar, ofn, uppþvottavél o.fl.
Fyrir framan salina er móttökusalur, anddyri og 3 wc. Hægt er að ganga út úr veislusölunum að norðanverðu (snýr að fótboltavellinum) ef einhverjir þurfa að reykja eða fá sér frískt loft.
Verðskrá 2021
Minni helm. | Stærri helm. | Allur salurinn | ||
Dagleiga | 65.000 | 75.000 | 95.000 | |
Föstud.-sunnud. | 95.000 | 105.000 | 135.000 | |
Rauðir dagar | 95.000 | 105.000 | 135.000 | |
Frídagur daginn eftir | 95.000 | 105.000 | 135.000 | |
Brúðkaupspakki | 105.000 | 115.000 | 155.000 | Fá salinn kvöldið áður |
Ef óskað er eftir salnum kvöldið áður | 35.000 | 35.000 | 35.000 | Viðbót við salarleigu |
Starfsfólk gangi frá borðum og stólum | 35.000 | 35.000 | 35.000 |
Aðstoðarmanneskjur fylgja salnum og er þeim greitt sér kr.4.300.- Ein aðstoðarmanneskja fylgir hverjum 90 gestum, tvær 180 gestum o.sfrv af fenginni reynslu ef um viðburðir er að ræða hjá fólki yngri en 25 ára þá er aðstoðarfólk fleiri. Ávallt skal vera starfsmanður á svæðinu meðan leigutaki er í salnum. ATH á rauðu dögum er tímakaup starfsfólks hærra.
Staðfestingargjald er kr.30.000 og salurinn skal fullgreiddur viku fyrir leigu.Staðfestingargjald er óafturkræft.Reikningurinn er sendur í heimabanka frá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar
Veislunni á að vera lokið kl. 02:00 og allir farnir úr húsi kl. 03:00.
Tvær stærðir af borðum þ.e. 80x160 cm og 80x140 cm , við leigjum dúka á kr.700 stykkið og fer einn dúkur á hvert borð.
Leigutakar geta komið með mat og kökur o.sv.frv.
Þegar veislan er búin þarf að þvo leirtau, hnífapör, könnur, potta og stjaka og setja á sinn stað. Þrífa borðin og setja þau og stólana upp á kerrur og sópa gólfið. Við skúrum gólfið í salnum, eldhúsinu, móttökusalnum, anddyri og wc. Ef leigutaki gengur ekki frá borðum og stólum eins og um er talað hér að þá rukkum við hann um 35.000.- kr. sem vinnuframlag okkar. Upplýsingar sendist á elsa@fh.is eða hildur@fh.is
Verðskrá 2022
Minni helm. | Stærri helm. | Allur salurinn | ||
Dagleiga | 70,000 | 80,000 | 100,000 | |
Föstud.-sunnud. | 100,000 | 110,000 | 140,000 | |
Rauðir dagar | 100,000 | 110,000 | 140,000 | |
Frídagur daginn eftir | 100,000 | 110,000 | 140,000 | |
Brúðkaupspakki | 105,000 | 115,000 | 155,000 | Fá salinn kvöldið áður |
Ef óskað er eftir salnum kvöldið áður | 40,000 | 40,000 | 40,000 | Viðbót við salarleigu |
Starfsfólk gangi frá borðum og stólum | 38,000 | 38,000 | 38,000 |
Aðstoðarmanneskjur fylgja salnum og er þeim greitt sér kr.4.600.- Ein aðstoðarmanneskja fylgir hverjum 90 gestum, tvær 180 gestum o.sfrv af fenginni reynslu ef um viðburðir er að ræða hjá fólki yngri en 25 ára þá er aðstoðarfólk fleiri. Ávallt skal vera starfsmanður á svæðinu meðan leigutaki er í salnum. ATH á rauðu dögum er tímakaup starfsfólks hærra.á tímann.. Ávallt skal vera starfsmanður á svæðinu meðan leigutaki er í salnum. Staðfestingargjald er kr.30.000 og salurinn skal fullgreiddur viku fyrir leigu.Staðfestingargjald er óafturkræft.Reikningurinn er sendur í heimabanka frá Fimleikafélagi Hafnarfjarðar
Veislunni á að vera lokið kl. 02:00 og allir farnir úr húsi kl. 03:00.
Tvær stærðir af borðum þ.e. 80x160 cm og 80x140 cm , við leigjum dúka á kr.800 stykkið og fer einn dúkur á hvert borð.Leigutakar geta komið með mat og kökur o.sv.frv.