2. fl. í undanúrslit í bikarnum
Það voru heimamenn sem byrjuðu betur með tveim ódýrum mörkum og útlitið ekki bjart fyrir FH. Okkar stelpur unnu sig hinsvegar vel inn í leikinn og áður en fyrri hálfleikur var úti hafðið liðið minkað muninn. Þar var að verki Sara Atladóttir með skalla.
Í Síðari hálfleik spilaði liðið vel og jafnaði leikinn. Þá þurftir að grípa til framlengingar en hvorugu liðinu tókst að skora. Í vítaspyrnukeppni voru svo úrslitin ráðin og FH því komið í undanúrslit. Þar mun liðið mæta sigurvegurum úr leik Hauka og Fylkis.
Næsti leikur liðsins er á mánudaginn kl. 20:00 , aftur gegn Val en nú í Krikanum.