2. fl. kv. lagði Stjörnuna

2. fl. kv. lagði Stjörnuna

Framan af höfðu FH-ingar undirtökin þó Stjarnan væri allt eins líkleg til að skora. Fyrstamark FH gerði Guðrún Björg en því svöruðu Stjörnustúlkur með 2 mörkum eftir mistök í vörn FH. Staðan í hálfleik 1-2.

Í síðari hálfleik var allt annað uppá teningnum og ljóst frá fyrstu mínútu hver færir með sigur af hólmi. FH bætti við sex mörkum og áttu hálfleikinn skuldlaust. Jóhanna Steinþóra Gústavsdóttir fór mikinn og skoraði 4 mörk og hefur þá skorað 7 mörk í þrem fyrstu leikjum sínum fyrir FH.  Sigmundína Sara bætti svo við marki sem og Kristín Guðmundsdóttir 1.

Stelpurnar fara vel af stað og hafa sigrað þrjá fyrstu leiki sína í mótinu.

Aðrar fréttir