2 og 4 fl í bikarúrslit !!!!
Í stuttu máli var boðið uppá frábæran leik hjá 2 fl þar sem FH sigraði að lokum 30-28 og baráttusigur í höfn. Mikilar sviptingar voru í leiknum en eins og fyrr sagði þá var það FH sem sigraði að lokum. Til gaman þá er hluti af þessum strákum að fara í 6 sinn í bikarúrslit sl 7 ár. Ekki amalegt það. Og þeir hafa aldrei tapað í bikarúrslitum og ætla væntanlega ekki að byrja á því núna.
Þá að 4 fl kk.
Það var strax frá fyrstu mínutu hægt að sjá hvort liðið myndi sigra, aðeins spurnig hversu stór sigurinn yrði. Eins og raunin varð. FH sigraði með 11 mörkum og í sjálfu sér ekkert hægt að segja um leikinn, einstefna frá byrjun.
þannig að lokaútkoma bikarkvöldsins varð frábær, bæði lið í úrslit og hvetjum við alla FH-inga til að mæta í höllina, hvetja strákana til að landa 2 bikartitlum í hús. Tímasetning leikja verður kynnt síðar í vikunni.
Að lokum, til hamingju strákar með þennan áfanga