3. fl. kv. Hafnaði í 2. sæti í Íslandsmótinu innanhús-Futsal

3. fl. kv. Hafnaði í 2. sæti í Íslandsmótinu innanhús-Futsal

FH hóf leik
gegn Langnesingum og höfðu sigur 3-0 í rólegum leik. Næst mætti
FH-Blikum en þá hafði okkar lið þegar tryggt sér þáttöku í
undanúrslitum. Leik liðanna lauk með 3-1 sigri blika í annars jöfnum
leik. Þá var komið á undanúrslitum gegn Þrótti. Þeim leik lauk með
sigri FH 1-0 og FH komið í úrslitaleikinn. Þar mætti FH gömlum
kunningjum úr HK sem sigrað höfðu í Krikanum á sínum tíma. Það er
skemmst frá því að segja að HK endurtók leikinn og vann 1-0 í
framlengdum leik.
Niðurstaðan vonbrigði fyrir FH því sigurinn hefði
í getað fallið hvoru megin en að þessu sinni var heppnin ekki með
stelpunum okkar.
HK er vel að sigrinum komin og óskum við þeim til hamingju.

Aðrar fréttir