3. flokkur deildarmeistari

3. flokkur deildarmeistari

3. flokkur karla hjá FH tryggði sér í gærkvöldi deildarmeistaratitillinn með sigri á Haukum 18-14 í Kaplakrika. Leikurinn sjálfur mun ekki fara í sögubækurnar sem gríðarleg skemmtun en sigurinn dugði til þess að færa FH-liðið á toppinn í deildinni og tryggja þar með hinn eftirsóttarverða deildartitill. Leikurinn í gær var ekki upp á marga fiska reyndar var vörninn frábær með Daníel sem besta mann í markinu en hann varði yfir 20 skot í leiknum. Þá átti Ólafur Guðmundsson frábæran leik í vörninni. Sóknarleikurinn var skelfilegur eins og markatalan sýnir. Lélegt tempo á sókninni og menn ragir að sækja einn á einn. En sigur var það og FH-liðið ætlar sér stóra hluti í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitillinn. Gaman var að sjá hversu margir komu að horfa á strákana í þessum leik og vilja þeir þakka kærlega fyrir stuðninginn.

Aðrar fréttir