3000m hlaup Framfara 2004

3000m hlaup Framfara 2004

3000m hlaup Framfara 2004
Innanfélagsmót FH og Framfara – 1.júlí í Kaplakrika

Fimmtudagskvöldið 1.júlí kl. 20 verður haldið 3000m hlaup í Kaplakrika á vegum Framfara, hollvinafélags millivegalengda- og langhlaupara. Hlaupið er hluti af Innanfélagsmóti FH og Framfara og er það liður í þeirri viðleitni Framfara að brúa bilið milli brautar- og götuhlaupara með því að hvetja götuhlaupara til aukinnar þátttöku í brautarhlaupum. Vegalengdin, 3000m, þykir hæfileg fyrir götuhlaupara til að stíga sín fyrstu keppnisspor á brautinni og er í raun hin ákjósanlegasta hraðaæfing fyrir keppni í 10km, hálfu og heilu maraþoni.

Aðrar keppnisgreinar á mótinu eru sleggjukast kvenna og spjótkast karla og er ábyrgðarmaður mótsins Sigurður Haraldsson.

Tímaseðill
Kl. 20:00 3000m hlaup kvenna
Kl. 20:20 3000m hlaup karla
Kl. 20:40 Sleggjukast kvenna
Kl. 21:00 Spjótkast karla

Þátttaka í mótinu er ókeypis og fer skráning fram með tölvupósti til Björns Margeirssonar (bjornm@hi.is) eða á staðnum til kl. 19:45.

3000m hlaupið:
Flokkaskipting (miðað er við afmælisdag):

· 39 ára og yngri karlar
· 39 ára og yngri konur
· 40 – 49 ára karlar
· 40 – 49 ára konur
· 50 ára og eldri karlar
· 50 ára og eldri konur

Verðlaun:
· 1 skópar frá ASICS til besta karls
· 1 skópar frá ASICS til bestu konu
· verðlaunapeningar og Afrekaskrá lengri hlaupa eftir Sigurð Pétur Sigmundsson til þriggja efstu í hverjum flokki

Vonast er eftir góðri þátttöku hlaupara af öllum getustigum!
Hægt verður að kaupa myndskreytta afrekaskrá lengri hlaupa (höf. Sigurður Pétur Sigmundsson) á staðnum. Verð: 2500kr.

F.h. stjórnar Framfara,
Björn Margeirsson

Aðrar fréttir