Aðalfundur Gaflaradeildar FH á fimmtudag.
Kæru félagar,
Aðalfundur Gaflaradeildar FH verður haldinn fimmtudaginn 17. febrúar í Sjónarhól, samkomusal okkar FH-inga.
Fundurinn hefst kl. 19:00 með venjulegum aðalfundarstörfum.
Eftir fund geta menn keypt sér léttar veitingar í salnum og um klukkan 19:30 kemur Gunnar Svavarsson og gerir grein fyrir framkvæmdum í Kaplakrika.
Ef áhugi er fyrir hendi mun verða gengið um húsið og mönnum sýndar þær breytingar sem orðið hafa á húsakynnum okkar.
Gaflaradeild FH