Afhendu 2 milljónir til Gleym mér ei

Knattspyrnudeild FH & Auður leiddu saman hesta sína þriðja árið í röð í góðgerðartreyju verkefni sínu.
Að þessu sinni völdum við að styðja við frábært og mikilvægt starf Gleym mér ei – styrktarfélags sem stendur með þeim sem missa barn á meðgöngu, í eða eftir fæðingu. Tilgangur félagsins er að veita stuðning og skapa rými fyrir sorgina, svo að lítil ljós geti lifað áfram í hjörtum okkar.
Í ár söfnuðust 2.000.000kr! 
Seldar voru 1000 treyjur og rann 1.000kr af hverri seldri treyju óskipt til félagsins – Auður tvöfaldaði svo þá upphæð.
Á móti ávísununum tóku Kolbrún Tómasdóttir, framkvæmdarstjóri Gleym mér ei og Aníta Rós Tómasdóttir, meðlimur í stjórn Gleym mér ei.
Það að selja 1.000 svona treyjur þykir okkur rosalega merkilegt og sýnir vel þann samhug sem býr í samfélaginu okkar.
En það er okkur ótrúlega mikilvægt að geta lagt okkar af mörkum til þessa verkefnis og stutt við það dýrmæta starf sem Gleym mér ei sinnir á hverjum degi fyrir fjölskyldur sem þess þurfa.
Við erum gríðarlega þakklát fyrir stuðningsfólkið, alla sem hafa keypt sér treyju og alla sem tóku þátt í þessu með okkur.
Þegar samfélagið stendur saman geta litlir hlutir orðið að stórum.
– Garðar Ingi Leifsson, markaðsstjóri knattspyrnudeildar FH

Tryggðu þér síðustu eintökin hér!

Aðrar fréttir

Secret Link