Aldís Kara valin í U-19 ára landsliðið

Aldís Kara valin í U-19 ára landsliðið

Aldís Kara Lúðvíksdóttir, leikmaður meistaraflokks FH, hefur verið valin í U-19 ára landsliðshópinn sem heldur til Danmerkur í lok október til að taka þátt í undankeppni fyrir EM. Þar munu íslensku stelpurnar leika gegn Slóvakíu, Moldavíu og Danmörku. Aldís á að baki 5 leiki með U-19 ára landsliðinu og 15 með U-17 ára liðinu en í þeim hefur hún skorað 18 mörk.

FH.is óskar Aldísi Köru góðs gengis í baráttunni í komandi verkefni.

Aðrar fréttir