
Aron Evrópumeistari
Alfreð Gíslason stýrði þýska meistaraliðinu Kiel
til sigurs í Meistaradeild Evrópu í handknattleik í dag þegar það lagði
Barcelona, 36:34, í úrslitaleik í Köln Arena í Þýskalandi. Aron
Pálmarsson lék með Kiel á köflum í leiknum í dag en náði ekki að skora.
Hann er því Evrópumeistari á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku í
handknattleik.
Þetta er í annað sinn sem Alfreð
stýrir liði til sigurs í Meistaradeild Evrópu en Magdeburg vann
keppnina undir hans stjórn fyrir átta árum. Kiel tapaði í úrslitaleik
Meistaradeildar á síðasta ári með Alfreð við stjórnvölin.
Barcelona
var sterkara liðið í úrslitaleiknum í dag fyrstu 45 mínútur hans.
Spánverjarnir voru þremur mörkum yfir í á hálfleik og náðu mest sex
marka forskoti þegar rúmar 40 mínútur voru liðna af leiknum, 25:19. Þá
stórbatnaði vörn Kielar-liðsins og Frakkinn Thierry Omeyer hrökk í gang
í markinu. Þegar tíu mínútur voru eftir var Barceloan marki yfir,
29:28. Tveimur mínútum síðar var Kiel komið yfir, 30:29, í fyrsta sinn
í leiknum. Eftir það hélt Kielar-liðið forystu til leiksloka.
Filip Jicha var markahæstur hjá Kiel með 11 mörk.
Árangur
Kiel er enn athyglisverðari fyrir þær sakir að það hvorki Kim Andersson
né Momir Ilic gátu tekið þátt í leiknum. Reyndar kom Ilic haltrandi til
leiks í nokkur skipti og tók vítaköst.
Tekið af mbl.is
FH.is óskar Aroni til hamingju með þennan stórbrotna árangur og óskar honum góðs gengis á síðasta sprettinum í þýsku deildinni þar sem þýski titillinn er innan seilingar.