Aron í íslenska landsliðið

Aron í íslenska landsliðið


Aron Pálmarsson

Aron Pálmarsson leikmaður FH hefur verið valinin í landsliðshóp Íslands. Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknattleik hefur valið átján leikmenn, þar á meðal í fyrsta skipti okkar eigin Aron Pálmarsson, sem taka munu þátt í undirbúningi liðsins fyrir forkeppni Evrópumeistaramótsins.

Liðið leikur sína fyrstu leiki í sínum riðli strax í næstu viku. Mætir Ísland þar Belgíu á miðvikudagskvöldið og heldur svo af landi brott til Noregs þar sem Ísland mætir heimamönnum á laugardeginum.

Þetta eru frábærar fréttir fyrir Aron og FH, en Aron hefur farið á kostum í byrjun móts og skorað 43 mörk í 5 leikjum eða um 8 mörk í leik.

FH.is óskar Aroni til hamingju með þennan frábæra árangur!

Tími leikja og liðið:

Ísland – Belgía             Miðvikudagur               kl. 20:15 í Laugardalshöll.

Noregur – Ísland             Laugardagur               kl.16:15 í Drammen. (Staðartími)

Hópurinn nú er skipaður eftirtöldum:

Arnór Atlason, Aron Pálmarsson, Ásgeir Örn Hallgrímsson, Björgvin Gústavsson, Einar Hólmgeirsson, Guðjón Valur Sigurðsson, Hannes Jón Jónsson, Hreiðar Guðmundsson, Ingimundur Ingimundarson, Kári Kristjánsson, Logi Geirsson, Ragnar Óskarsson, Róbert Gunnarsson, Rúnar Kárason, Sturla Ásgeirsson, Sverre Jakobsson, Vignir Svavarsson, Þórir Ólafsson.

Tekið af mbl.is og hsi.is

 

Aðrar fréttir