Aron og Irma íþróttafólk FH 2024

Aron Pálmarsson og Irma Gunnarsdóttir íþróttafólk FH 2024

Handknattleiksmaðurinn Aron Pálmarsdóttir og frjálsíþróttakonan Irma Gunnarsdóttir voru í dag kjörin íþróttamaður og íþróttakona FH 2024.

Aron Pálmarsson var algjör lykilleikmaður FH-liðsins á síðasta tímabili þegar liðið varð bæði Íslands- og deildarmeistari. Aron hlaut inn eftirsótta Valdimarsbikar á lokahófi HSÍ en þann bikar hlýtur mikilvægasti leikmaður keppnistímabilsins. Aron var svo einnig kjörinn mikilvægasti leikmaður úrslitanna þegar FH tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á liði Aftureldingar. Aron fór fyrir íslenska landsliðinu á EM í Þýskalandi þar sem hann var að öllum öðrum ólöstuðum besti leikmaður liðins sem lenti í 10. sæti á mótinu. Heimkoma Arons til FH var gífurleg innspýting í félagið, ekki bara hvað meistaraflokkinn varðar heldur einnig í barna- og unglingastarfið þar sem Aron gaf mikið af sér til yngri iðkenda allan þann tíma sem hann var heima í FH og var ávallt tilbúinn að gefa af sér og aðstoða. Hann hóf leik með FH á núverandi tímabili en var seldur til ungverska stórliðsins Veszprém í byrjun nóvember.

Irma Gunnarsdóttir er búin að vera í fremstu röð í langstökki og þrístökki hér á landi í mörg ár og er hún margfaldur Íslands- og bikarmeistari í stökkgreinum. Árið 2023 setti hún Íslandsmet í þrístökki bæði innanhúss (13,36 m) og utanhúss (13,40 m) og stökk lengst í langstökki 6,40 m. Í ár bætti hún árangur sinn enn frekar. Setti Íslandsmet í þrístökki utanhúss með 13,61 m stökki er hún sigraði á Meistaramóti Íslands og nálgast því hratt að komast í fremstu röð í heiminum en gjarnan er miðað við 14,00 m sem góðan árangur á stórmótum. Þá bætti Irma árangur sinn í langstökki á árinu með 6,45 m innanhúss. Þá má nefna að Irma er liðtækur kúluvarpari og bætti árangur sinn í 13,52 m á árinu og er önnur best á landinu í þeirri grein á afrekaskrá ársins.

Innilega til hamingju Aron og Irma!

 

Aron Pálmarsson og Irma Gunnarsdóttir voru kjörin íþróttafólk FH. Móðir Irmu tók við verðlaunum hennar.

Aðrar fréttir