Ásbjörn og Þórdís Eva íþróttafólk FH 2019

Ásbjörn og Þórdís Eva.

Handknattleiksmaðurinn Ásbjörn Friðriksson og frjálsíþróttakonan Þórdís Eva Steinsdóttir voru kjörin íþróttakarl og íþróttakona FH árið 2019 en valið fór fram í Sjónarhóli fyrr í dag.

Ásbjörn var valinn handknattleiksmaður FH á lokahófi handknattleiksdeildar í vor. Ásbjörn var einn allra besti leikmaður Olísdeildarinnar á síðasta tímabili og varð m.a. markakóngur deildarinnar með 151 mark. Ásbjörn var algjör lykilleikmaður í liði FH sem vann langþráðan bikarmeistaratitil í meistaraflokki karla eftir sigur á Val í úrslitaleik. Á yfirstandandi tímabili hefur Ásbjörn haldið áfram á sömu braut og verið einn allra besti leikmaður deildarinnar. Hann er sem stendur næst markahæstur í deildinni og var valinn í úrvalslið fyrri umferðar í Olísdeildinni.

Auk þess að vera frábær leikmaður hefur Ásbjörn verið mikill leiðtogi FH-liðsins innan sem utan vallar í mörg ár. Hann var lengi fyrirliði liðsins en hefur nú undanfarin tvö tímabil verið spilandi aðstoðarþjálfari FH.

Ásbjörn Friðriksson.

Þórdís Eva keppti með íslenska landsliðinu í ár með frábærum árangri en m.a. sigraði hún á Evrópumóti Smáþjóða í 400 m hlaupi og í 4x400m m boðhlaupi. Á Norðurlandamóti U20 keppti Þórdís í 400m, 4×100 boðhlaupi og 4x400m boðhlaupi hún varð í öðru sæti í 400 m hlaupi, þriðja sæti í 4×100 og Norðurlandameistari U20 í 4x400m á nýju Íslandsmeti 20 ára og yngri. Þórdís Eva varð önnur í 400m hlaupi í Evrópubikar með landsliði Íslands þegar landslið Íslands fór upp um deild. Þórdís var meðal annars í 4×200 m boðhlaups Íslands sem sló Íslandsmet í greininni innanhúss. Þórdís Eva var fjórða stigahæsta kona landsins í frjálsíþróttum á innanhússtímabilinu.

Þórdís Eva var fyrir skömmu kjörin íþróttakona Hafnarfjarðar.

Þórdís Eva Steinsdóttir.

Aðrar fréttir