Báðir FH-ingar í úrslitum á EM í frjálsum

Hilmar Örn Jónsson varð í 7. sæti í sleggjukasti á Evrópumeistaramótinu er fram fór í Birmingham. Hann kastaði 77,26 m og var nálægt Íslandsmeti sínu sem er 78,03 m. Þetta er besti árangur Íslendings á EM  í frjálsíþróttum síðan 2002. Sindri Hrafn Guðmundsson stóð sig einnig mjög vel, komst í úrslit og varð í 10.sæti með 75,36 m en kastaði 79,31 m í undankeppninni. Frábær árangur hjá þeim félögum en þeir undirbúa sig af kappi fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í Los Angeles árið 2028.

Aðrar fréttir

Secret Link