Bakhjarlar FH – Nýtt upphaf

Bakhjarlar FH – Nýtt upphaf

Sæll kæri Bakhjarl

Eins og áður hefur komið fram er búið að breyta fyrirkomulaginu hjá Bakhjörlum og gildir kortið eingöngu fyrir leiki og viðburði á vegum knattspyrnudeildar.

Með þessum breytingum var gerð áherslubreyting á Bakhjörlum og kerfið aðeins stokkað upp. Gjaldið og leiðirnar munu breytast og blásið verður til sóknar í Bakhjörlum og viðburðum þeim tengdum. Stefnt er að því að fjölga í hópnum og gera það eftirsóknarverðara að vera skráður Bakhjarl og þar með stuðningsmaður knattspyrnudeildar FH. Þessi stuðningur er ómetanlegur og hefur hjálpað deildinni að komast á þann stall sem hún er í dag og þar sem við viljum að FH sé, á toppnum. Það er því afar mikilvægt að við höfum fjölmennan og góðan hóp Bakhjarla sem styðja liðið í þessari miklu baráttur sem nú fer að hefjast. Fyrsti leikur liðsins er á mánudaginn 5. maí gegn sterku liði Breiðabliks. Leikurinn átti að fara fram á Kópavogsvelli en sökum lélegra vallarskilyrða þar óskuðu Blikar eftir því að færa leikinn á Kaplakrika. Leikurinn verður því hér í Kaplakrika og hefst hann stundvíslega kl. 19:15 en húsið opnar fyrir Bakhjarla kl. 18:45 og verður hægt að fá sér súpu og meðlæti fyrir leik.

 

Bakhjarlakortin verða afhent á allra næstu dögum. Hægt er að koma upp í Kaplakrika og kynna sér þessar breytingar eða ganga frá skráningu alla helgina. Við verðum hérna frá kl 13 – 15:00 á laugardaginn og sunnudaginn. Tökum á móti breytingaskráningum og nýskráningum og hvetjum við alla til þess að koma og ganga frá sínum málum og sleppa við biðröðina fyrir leikinn .Einfaldasta leiðin til að færa sig yfir í einhverja af nýju leiðunum er að svara þessum tölvupósti og velja leið, eða fylla út formið hér að neðan og senda okkur. Við sjáum þá um að breyta núverandi leið yfir í þá nýju og klára allt ferlið.

 

Nýju leiðirnar en þær eru þrjár:

 

1. FH-ingur:

Mánaðargjald yfir heilt tímabil: 1.000 kr

Innifalið: 2 leikir á tímabilinu.

Fríðindi:

5 kr afsláttur hjá AO,

 

2. Bakhjarl:

Mánaðargjald yfir heilt tímabil: 2.500 kr

Innifalið: 14 leikir á tímabilinu.

Fríðindi:

7 kr fastur afsláttur á öllum stöðvum hjá Atlantsolíu

– 15 kr afslátt á afmælisdaginn

– 12. kr afslátt á Atlantsolíudögum

– 5x 12 kr afsláttur á Bakhjarla dögum.

500 kr afsláttur af evrópuleikjum FH

Músik og sport (ákveðnar vörur á afslætti)

Bónstöð Hafnarfjarðar – 15% afsláttur,

Bílaleiga Akureyrar – 10% af bílaleigub&iacut

Aðrar fréttir