Bergþór Jónsson 90 ára

Í dag 15. júlí er Bergþór Jónsson 90 ára.

Beggi er gaflari, fæddur og uppalinn á Hverfisgötunni á FH svæðinu. Enda í hópi þeirra sem ég tel mestu, bestu og tryggustu FH-inga sem ég hef kynnst og hef ég þó kynnst þeim mörgum. Strax í æsku hóf hann íþróttaiðkun á vegum FH. Hann var í frjálsum, fótbolta og handbolta og var hvergi slegið af. Hann var í landsliði Ísland í handbolta í fyrstu HM keppninni 1958. Hann var margfaldur Íslandsmeistari í handbolta bæði innanhúss og utan. En lengst um var Beggi liðsmaður FH og ÍBH í fótbolta. Þar var hann formaður knattspyrnudeildar og auk þess gegndi hann ýmsum störfum á vegum KSÍ. Á dögum Alberts Guðmundssonar hjá ÍBH var Beggi fremstur í flokki. Hann lék fjölda leikja bæði fyrir ÍBH og FH og þegar hann lauk ferlinum var hann leikjahæstur hjá báðum liðum. En þótt ferill Begga á íþróttasviðinu væri mikill og glæstur, þá var félagslega hliðin ennþá merkilegri og glæstari fyrir okkur FH–inga og Hafnfirðinga yfirleitt. Hjá FH var hann stjórnarmaður og formaður til margra ára en fyrst og fremst met ég störf hans vegna uppbyggingarinnar á Kaplakrikasvæðinu mikilvægust og árangursríkust. Hann lagði sig allan fram um að gera Krikann sem glæsilegastan hvar sem hann fór. Við FH–ingar getum þakkað Begga fyrst og fremst allra fyrir hina frábæru aðstöðu sem við í dag njótum í Kaplakrika. Hann gaf aldrei tommu eftir og hugmyndir hans urðu að veruleika hver á eftir annarri. Ég kynntist Begga 1964 og vinátta okkar hefur verið sterk og aldrei hefur okkur orðið sundurorða þrátt fyrir að ýmislegt hafa gengið á. Þegar við ásamt félögum okkar endurvöktum knattspyrnudeild FH árið 1964 hefur hann verið mér leiðarljós í starfinu fyrir félagið okkar. Kæri vinur og félagi, fyrir hönd okkar FH–inga allra ekki síst þeirra sem tekið hafa þátt í starfinu hjá félaginu þakka ég fyrir frábæran vinskap, dugnað og einlægni í starfi.

Kæra Jóhanna og börnin Hrönn og Jón Snorri og ykkar fjölskyldur innilega til hamingju með drenginn snara og Beggi njóttu dagsins út í ystu æsar eins og þér er einum lagið.

Þinn vinur og félagi Ingvar Viktorsson.




Aðrar fréttir

Secret Link