Bikarúrslit í Höllinn á sunnudag

Bikarúrslit í Höllinn á sunnudag

Sunnudaginn 26. febrúar verður mikill FH-dagur í Laugardalshöllinni. Þá munu 3. og 4. flokkur karla mæta í Höllina og spila til úrslita í SS-bikarnum. Gengi þessara flokka er búið að vera frábært á tímabilinu og eru þau bæði taplaus það sem af er vetri.

Leikur 4. flokks hefst klukkan 12:00 en 3. flokks klukkan 15:00. Frí rútuferð verður frá Kaplakrika kl. 11.15 og til baka kl. 16.30. Boðið verður upp á SS-pylsur og kók á milli leikja.

 

Strákarnir í 4. flokki hafa spilað þrjár umferðir í Íslandsmótinu og sigrað í þeim öllum með miklum yfirburðum og stefna þér á alla titla sem í boði eru í ár eins og 4. flokkur afrekaði líka á síðasta ári. Mótherjar þeirra núna verða Selfyssingar en þessi lið léku einmitt líka til úrslita í Bikarnum í fyrra og þá sigruðu FH-ingar eftirminnilega. Selfyssingar hafa á undanförnum árum verið okkur erfiðir andstæðingar.


3. flokkur
hefur komið svolítið á óvart í ár. Farið var að stað í haust með smá vafa um hvernig þeim mundi ganga. En strax eftir fyrsta mótið þar sem þeir sýndu mikla yfirburði og sigruðu hefur allt gengið þeim í haginn. Sigur í þessu móti gerði það að verkum að þeir spiluðu í 1. deild í vetur. Gengið hjá þeim er með ólíkindum og eru þeir í dag efstir í deildinn, hafa unnið tíu leiki og gert eitt jafntefli og var það á móti HK sem er í öðru sæti í deildinni tveimur stigum á eftir FH.

Í í úrslitaleiknum á sunnudaginn munu FH-ingar mæta Völsurum. Leikur þessara liða í vetur endaði með tveggja marka sigri FH-inga í hörkuleik. Staða Valsara í deildinni gefur ekki rétta mynd af styrk þeirra.

En við vitum að þessir FH-strákar í 3. og 4. flokki munu leggja allt í sölurnar til að koma með tvo bikartitla í Krikann á sunnudag. Skorum við á alla sanna FH-inga að mæta í Laugardalshöllina og hvetja strákana til sigurs.

ÁFRAM FH !!

Aðrar fréttir