Birgir Már í FH

Birgir Már í FH

Birgir Már Birgisson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við FH. Birgir Már er U-20 ára landsliðsmaður, örvhentur hornamaður sem leikið hefur með liði Vikings undanfarin ár.

“Við FH-ingar erum mjög ánægðir með að Birgir Már hafi valið að ganga til liðs við FH, þetta er mikill fengur fyrir okkar félag.” segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH eftir undirskrift dagsins. “Birgir Már er metnaðarfullur leikmaður sem ætlar sér langt og við munum gera allt til þess að hjálpa honum við að ná sínum markmiðum. Það segir allt um áhuga okkar og trú á leikmanninum að við kaupum upp samning hans, en Birgir Már var samningsbundinn Víkingi. FH og Víkingur áttu mjög góð og heiðarleg samskipti varðandi félagaskiptin, ásamt leikmannasamtökum Íslands og það ber að þakka” sagði Ásgeir að lokum.

Velkominn í FH Birgir Már.

Á myndinni sjáum við Birgi Má og Ásgeir Jónsson handsala samninginn.

Aðrar fréttir