Birna Berg með U19 í fótbolta til Póllands

Birna Berg með U19 í fótbolta til Póllands

Birna vakti athygli á síðasta ári þegar landsliðsþjálfari A-landsliðs kvenna valdi hana í æfingahóp.  Þá hefur hún einnig leikið 10 landsleiki með U17 ára liði Íslands þar sem hún hefur jafnan verið 1. markmaður.

Birna er einnig efnilegur handknattleiksmaður sem leikið hefur með yngri landsliðum Íslands og fékk sitt fyrsta tækifæri í mfl. með liði FH í vetur.

Við FH-ingar óskum Birnu til hamingju um leið og við vonumst til að íslenska liðinu gangi vel á mótinu en þar mun það mæta Dönum, Svíum og heimamönnum.

Aðrar fréttir