Björn Margeirsson setti met í 1000m hlaupi í gær fimmtudaginn 2. febrúar, það annað á einni viku.

Björn Margeirsson setti met í 1000m hlaupi í gær fimmtudaginn 2. febrúar, það annað á einni viku.

Björn Margeirsson FH bætti í gærkvöldi Íslandsmetið í 1000m hlaupi á alþjóðlegu móti í Stokkhólmi, þegar hann hljóp á 2:24.52 mín. Björn varð í fimmta sæti á eftir tveimur Keníumönnum, Breta og Rússa.

Gamla metið var skráð á Sigurbjörn Árna Arngrímsson HSK, 2:29,12 mín frá árinu 2000, en einnig er skráður árangur í metaskránni á Guðmund Skúlason Ármanni, 2:26,61 mín frá árinu 1984, en sá árangur hefur ekki verið staðfestur sem met, líklega vegna þess að ekki hefur borist staðfesting á þeim árangri til FRÍ á sínum tíma.

Það er skammt stórra högga á milli hjá Birni, en hann bætti metið í 800m hlaupi fyrir fimm dögum á Vígslumótinu í Laugardalshöllinni sl. laugardag.

Björn hyggst einnig reyna við met Jón Diðrikssonar í 1500m hlaupi á næstunni, en það er 3:45,6 mín frá árinu 1980.

Úrslit í 1000m hlaupinu í Stokkhólmi í gær:
1 Elkana Angwenyi 83 KEN 2.22,22 PB
2 Suleiman Simotwo 80 KEN 2.22,53 PB
3 Neil Speaight 78 GBR 2.22,93
4 Yuriy Koldin 83 RUS 2.23,23
5 Björn Margeirsson 79 ISL 2.24,52
6 Michael Rotich 78 KEN 2.24,94
7 Steffen Co 77 GER 2.24,97
8 Majid Saeed Sultan 86 QAT 2.24,99
fengið af fri.is

Aðrar fréttir