Breiðablik – FH á sunnudag kl 16:30

Breiðablik – FH á sunnudag kl 16:30

Mótherji: Breiðablik  Hvar: Kópavogsvöllur  Hvenær: Sunnudaginn 20.sept klukkan 16:30

Það verður toppslagur í Pepsi-deildinni á sunnudaginn þegar við FH-ingar förum í heimsókn á Kópavogsvöll og mætum þar Breiðablik. FH er á toppnum með 45 stig og Breiðablik í öðru sæti með 37 stig. 

Stuðningurinn hefur verið frábær í sumar og vonandi verður áframhald á honum því strákarnir þurfa svo sannarlega á stuðningnum að halda á sunnudaginn.

Forsala á leikinn er á Ölhúsinu Reykjarvíkurvegi fram að leik.

Allir á völlinn og áfram FH!

 

3U7A2214 (1)

FH – Radio 

Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á sunnudaginn þegar FH mætir Breiðablik. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net 

IMG_2124

Aðrar fréttir