C lið 4.flokks á fullri ferð

C lið 4.flokks á fullri ferð

Það varð áframhald á markaskorun í leiknum gegn Fylki. Leikurinn byrjaði þannig að Fylkismenn skoruðu fyrsta mark leiksins eftir ekki langan tíma. Við FH-ingar komum þó til baka og leiddum í hálfleik 2-3.  Það voru þeir Gunnlaugur Jón Ingason, Bragi Michaelsson og Auðunn Lúthersson sem skoruðu mörk okkar FH-inga í fyrri hálfleik.

Í seinni hálfleik bætti Bragi svo sínu öðru marki við en Fylkismenn skoruðu 4 mörk í hálfleiknum og sigruðu því 6-4.

Þetta var ágætur leikur okkar FH-inga, þá sérstaklega í seinni hálfleik. Það vantaði þó nokkuð uppá talandann í liðinu auk þess sem við megum láta finna meira fyrir okkur í varnaleiknum. Sumarið verður erfitt af lið fá að skora 6 mörk gegn okkur! En sóknarleikurinn er til fyrirmyndar og brátt mun draga frá sólu og liðið fer að hala inn fleiri stig

Aðrar fréttir