Caroline Murray skrifar undir hjá FH

Undirbúningu næsta tímabils er í fullum gangi hjá kvennaráði FH. Undanfarnar vikur og mánuði hefur verið gengið frá samningum við flesta leikmenn liðsins á síðasta keppnistímabili. Í dag skrifaði svo Caroline Murray undir samning um að spila með liðinu næsta sumar. Hún er fædd 1993 og lék í úrvalsdeildinni í Finnlandi á síðasta keppnistímabili. Caroline hefur fyrst og fremst spilað sem hægri eða vinsri kantmaður með liðum sínum í Bandaríkjunum og Finnlandi.

FH liðið endaði síðasta tímabil í 6. sæti úrvalsdeildarinnar sem var mjög góður árangur fyrir ungt og efnilegt lið eftir að hafa komið upp úr 1. deildinni árið á undan. Það er ætlun FH að byggja ofan á þennan góða árangur og búa til enn betra lið sem getur keppt við bestu lið Pepsí deildarinnar.

Það er ljóst að koma Caroline kemur til með að styrkja hópinn hjá meistaraflokki kvenna og við bjóðum hana velkomna til félagsins.

Aðrar fréttir