Coripharma nýr aðalsamstarfsaðili FH í handbolta

Coripharma nýr aðalsamstarfsaðili FH í handbolta

Lyfjafyrirtækið Coripharma er nýr aðalsamstarfsaðili handknattleiksdeildar FH. Samstarf Coripharma
og FH verður afar víðtækt og mun bæði snerta á uppbyggingu yngriflokka starfsins og einnig efla enn
frekar hið öfluga afreksstarf deildarinnar. Eitt af meginmarkmiðum samstarfsins verður að auka
þátttöku í handknattleik og styrkja um leið lýðheilsu barna og ungmenna. Þessi markmið eru í takt
við samfélagslegar áherslur Coripharma sem eru “Heilsa og vellíðan” og “Jafnrétti kynjanna” og eru
hluti af “Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun”. Vörumerki Coripharma
verður á öllum keppnisbúningum iðkenda FH í handknattleik næstu þrjú árin.

“Coripharma vill leggja íþrótta- og æskulýðsstarfi í okkar nærumhverfi lið og sýna samfélagslega
ábyrgð sem ört stækkandi fyrirtæki í Hafnarfirði. Stefna FH í að auka veg og virðingu handbolta
kvenna jafnt sem karla, ásamt áframhaldandi uppbyggingarstarfi yngri flokka beggja kynja, er stór
liður í því að við ákváðum að ganga til samstarfs við félagið. Jafnrétti kynja er mikilvægur hluti af
hugmyndafræði Coripharma og áætlanir FH ríma vel við okkar markmið. Við hlökkum verulega til
samstarfsins og trúum því að það muni verða gjöfult fyrir báða aðila,” segir Jónína Guðmundsdóttir
forstjóri Coripharma.

“Það hefur verið mikill vöxtur í iðkendafjölda hjá FH á síðustu árum enda hefur félagið yfir að ráða
einstakri aðstöðu og afar hæfum þjálfurum. Við vitum hversu mikilvægt það er að hafa öflugan
samstarfsaðila með okkur í þeim verkefnum að breiða út handbolta til yngri iðkenda og að styðja við
bakið á verkefnum meistaraflokka félagsins. Það er gríðarlega mikill fengur í því að hafa fengið
Coripharma í lið með okkur næstu þrjú árin. Við teljum að tenging fyrirtækja við íþróttir sé mikils
virði fyrir samfélagið í heild sinni því það gefur íþróttafélögum færi á að sækja fram í að styrkja
þjónustu við nærsamfélagið í gegnum fjölbreytt íþróttastarf og stuðla að heilbrigðu líferni og vellíðan
barna og ungmenna,” segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH.

Coripharma er nýsköpunarfyrirtæki í örum vexti en það sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á
samheitalyfjum til útflutnings. Félagið var stofnað árið 2018 en hjá því starfa nú um 170 mann í
fjölbreyttum störfum við þróun og framleiðslu lyfja.

Jónína Guðmundsdóttir forstjóri Coripharma og Ásgeir Jónsson formaður hkd. FH ásamt iðkendum FH.

 

 

Aðrar fréttir