Dagskrá Knattspyrnu- og Boltaskólans

Dagskrá Knattspyrnu- og Boltaskólans

Dagskrá Boltaskólans (’06-’07):

Á morgun, miðvikudaginn 6. júlí, ætlum við í Boltaskólanum að fara saman í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn. Það er mæting kl. 9 eins og venjulega og við förum með rútu inn í Laugardal. Krakkarnir verða í merktum vestum og verða a.m.k. 2 leiðbeinendur með 5-6 barna hóp. Foreldrar og eldri systkini eru hjartanlega velkomin með. Það er spáð fínu veðri en krakkarnir verða að vera klædd eftir veðri og vera með gott nesti. Ferðin er ókeypis fyrir krakkana en athugið að foreldrar og systkini þurfa að borga fyrir sig. Við verðum komin til baka í Kaplakrika um eða eftir kl. 12.

Á fimmtudaginn ætlum við svo í gönguferð niður að læk þar sem við förum í leiki og gefum öndunum brauð.

Á föstudaginn viljum við bjóða foreldrum að koma um kl. 11 og vera með í leikjum með krökkunum ef þau hafa tök á. Þá ætlum við að grilla og afhenda viðurkenningarskjöl.


Dagskrá Knattspyrnuskólans

Yngri hópur ( fædd ’05-’01)

Á morgun, miðvikudaginn 6. júlí ætlum við að fara niður á Víðistaðatún í fótbolta og aðra leiki. Það er mæting sem fyrr kl. 9 í Kaplakrika og við göngum saman niður á Víðistaðatún og verðum svo komin til baka fyrir kl. 12.

Fimmtudaginn 7. júlí ætlum við svo að fara í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Við förum með rútu kl. 9 og verðum komin til baka um 12. Yngstu krakkarnir 5-6 ára verða í merktum vestum og það verða a.m.k. 2 leiðbeinendur með 5-6 krakka í hóp. Foreldrar og eldri systkini yngstu krakkanna (5-6 ára) eru velkomnir með. Ferðin er ókeypis fyrir krakkana á námskeiðinu. Muna að vera klædd eftir veðri og með gott nesti.

Föstudaginn 7. júlí sem er lokadagur námskeiðsins þá ætlum við upp að Hvaleyrarvatni þar sem við ætlum í fótbolta og leiki. Að lokum ætlum við að grilla og afhenda viðurkenningarskjöl.

Eldri hópur (fædd ’00-’97)

 Miðvikudagur 6. júlí: Hittumst í Kaplakrika og hjólum niður í Suðurbæjarlaug þar sem við förum í sund.

Fimmtudagur 7. júlí: Hittumst í Kaplakrika og förum niður á Víðistaðatún þar sem við förum í fótboltagolf og skallatennis.

Föstudagur 8. júlí: Förum upp að Hvaleyrarvatni þar sem við förum í fótbolta og grillum.

Aðrar fréttir