Daníel Matthíasson í FH

Daníel Matthíasson í FH

Ungur og efnilegur Akureyringur skrifaði um helgina undir 3 ára samning við handknattleiksdeild FH.
Daníel hefur verið leikmaður yngri landsliða Íslands undanfarin ár og því fengur fyrir FH að fá hann í félagið.
Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari FH þekkir vel til Daníels og lagði mikla áherslu á að fá hann til félagsins.

” Ég er mjög glaður að Daníel valdi FH frekar en önnur úrvalsdeildarlið sem vildu fá hann. Hann mun falla vel inn í okkar unga og hungraða leikmannahóp, hann er mjög efnilegur línumaður sem við bindum miklar vonir við að blómstri hjá FH á næstu árum.  Daníel er mjög metnaðarfullur strákur og gríðarlega duglegur á vellinum og fellur vel inn í þær hugmyndir FH að byggja liðið upp á ungum og efnilegum leikmönnum á næstu árum ” segir Halldór Jóhann Sigfússon þjálfari FH.

Aðrar fréttir