Eimskips bikarinn í kvöld (ÍR – FH)

Eimskips bikarinn í kvöld (ÍR – FH)

ÍR – FH

Mfl. karla leikur í kvöld gegn ÍR í 8.liða úrslitum Eimskipsbikarsins. Leikurinn hefst kl 19:30 og er spilaður í Austurbergi. ÍR-ingar lýta á þetta sem leik ársins og auglýsa hann sem slíkan fyrir sínu stuðningsfólki. Strákarnir þurfa á ykkar stuðning að halda til að tryggja sér sæti í undanúrslitum. Það má því búast við hörku stemmingu í Austurberginu í kvöld.

Til gamans má geta að FH-ingurinn og eilífðar unglambið Bjarki Sigurðsson þjálfar lið ÍR og kæmi það engum á óvart að hann klæði sig í Rehband kafaragallann sinn og spili á móti syni sínum í kvöld. Eins munu bræðurnir Benedikt og Guðni Kristinsynir berjast á græna dúkknum í Austurbergi. Þeir sem hafa fylgst með þeim bræðrum á æfingum hjá FH í gegnum tíðina vita að það er sjaldan lognmolla í kringum þá bræður þegar þeir eigast við. Það verður því nóg af innbyrðis rimmunum sem hægt verður að fylgjast með í kvöld.

FH-ingar mætum og styðjum okkar lið inn í undanúrslitin.

Aðrar fréttir