Einar Andri Einarsson til FH

Einar Andri kominn heim!

Einar Andri Einarsson hefur verið ráðinn í afreks- og yngri flokka störf hjá handknattleiksdeild FH. Einar Andri er öllum hnútum kunnugur í Fimleikafélaginu en hann er uppalinn hjá félaginu. Einar Andri, sem er grunnskólakennari að mennt, útskrifaðist í vetur með Master Coach gráðuna en hún er sú æðsta í alþjóðlegum handbolta. Hann þjálfaði á árum áður lengi í yngri flokkum félagins, starfaði sem á tíma sem yfirþjálfari yngri flokka áður en hann tók við meistaraflokki karla. Hann var m.a. aðalþjálfari FH-liðsins ásamt Kristjáni Arasyni þegar FH varð Íslandsmeistari árið 2011. Síðastliðin sex ár hefur Einar Andri þjálfað meistaraflokk Aftureldingar með mjög góðum árangri.

„Við FH-ingar erum gríðarlega ánægðir að fá Einar Andra aftur í störf hjá félaginu. Einar Andri hefur sýnt það og sannað á sínum ferli hversu öflugur þjálfari hann enda með hvoru tveggja með mikla reynslu og mikla menntun í þjálfarafræðunum.“ sagði Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri hkd. FH eftir undirskrift dagsins. „Einar Andri mun m.a. taka þátt í enn frekari mótun og uppbygginu yngri flokka starfsins hjá FH og bindum við miklar vonir við störf hans“ sagði Sigurgeir Árni að lokum.

Aðrar fréttir