Einar Rafn Eiðsson í FH

Einar Rafn Eiðsson í FH

Einar Rafn Eiðsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við FH.

 Einar Rafn spilaði í Noregi síðastliðið tímabil og getur leikið bæði sem hornamaður og skytta og mun því reynast FH-ingum dýrmætur næstu árin.

 Það er gott að fá Einar Rafn heim, hann er leiðtogi og kemur með mikil gæði inn í okkar hóp. Hann þekkir vel til í Kaplakrika og veit að hverju hann gengur, og það vitum við líka.

segir Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH.

 

Stjórn handknattleiksdeildar FH býður Einar Rafn velkominn heim.

Aðrar fréttir