Erindi til Bæjarráðs vegna aðstöðuleysis knattspyrnudeildar FH

FRETT-FH-Vidar-Halldors-WEB-525x328

Hér má sjá erindi sem Aðalstjórn sendi inn til Bæjarráðs Hafnarfjarðar síðasta fimmtudag.

KnattspyrnuaðstaðaVH

Eignask.samn. Kaplakrika 17.8.2017

Bréf til bæjarráðs 18.8.2017

HUGLEIÐINGAR UM KNATTSPYRNUAÐSTÖÐU

Við FH-ingar höfum nú um 12 ára skeið rekið knatthús (knattspyrnuskjól) hér í Kaplakrika sem kallað hefur verið Risinn. Risinn er stálgrindarhús með steyptum veggjum að hluta, stálgrindin er klædd með PVC dúkefni (endingartími 40 ár ++++), framleitt af Ferrari. Dúkefnið hleypir í gegnum sig birtu. Gæða gervigras er í húsinu. Undirritaður vill í stuttu máli og almennt lýsa upplifun okkar af rekstri Risans í þessi ár ásamt því að skoða og bera saman þessa gerð húsa við gervigrasvelli utanhúss og einangraðra, full hitaðra knattspyrnuhalla.

  1. Stofnkostnaður (nálgun). Stofnkostnaður knattspyrnuskjóls er 130% dýrara en útivallar (flóðljós og snjóbræðsla) og stofnkostnaður einangraðs húss er 100% dýrara en knattspyrnuskjóls.

(Full vallarstærð: útivöllur 280 millj., knattsp.skjól 650 millj. og knattspyrnuhöll 1.300 millj.)

  1. Rekstrarkostnaður (nálgun). Rekstrarkostnaður útivallar er 35% dýrari en knattspyrnuskjóls. Rekstur knattspyrnuhallar er 150% dýrari en knattspyrnuskjóls. Hér er ekki tekið tillit til kostnaðar við mannahald og umsjón búningsaðstöðu (hluti af öðrum mannvirkjum).

(Full vallarstærð pr.ár: útivöllur 19 millj., knattsp.skjól 14 millj. og knattspyrnuhöll 35 millj.)

  1. Birtuskilyrði og lýsing. Eins og áður sagði hleypir dúkefni Risans í gegnum sig dagsbirtunni og þ.a.l. er notkun raflýsingar óþarfi þegar dagsbirtunnar nýtur við, einnig gerir þetta Risann mjög notendavænan yfir sumarmánuðina.Kronumot 2017 97
  2. Nýting (nálgun). Ef nýting er skoðuð yfir vetrarmánuðina má segja að nýting útivalla sé 70% (æfingum aflýst og æfingar sem ekkert vit er í vegna veðurfars) samanborið við knattspyrnuskjól. Nýtingin útivalla yfir vetrarmánuðina október til og með apríl er á bilinu 50-90%. Sama nýting er á knattspyrnuskjóli og knattspyrnuhöll. Sumarnotkun er á pari ef borin eru saman knattspyrnuskjól og útivellir en segja má að þó að það sé ekkert því til fyrirstöðu að nota knattspyrnuhallir að sumarlagi þá er reynslan hér á landi (Kórinn, Fífan og Egilshöll) sú að notkun knattspyrnuhalla er mjög lítil yfir sumarmánuðina.
  3. Lærdómur og upplifun iðkenda. Ljóst er að upplifun iðkenda í knattspyrnu er allt önnur og ánægjulegri við náttúruleg skilyrði en við raflýsingu. Mjög slæmt veðurfar orsakar neikvæða upplifun á útivöllum og um leið minni lærdóm, getustig stendur í stað19145719_771556546360473_8654809747920346205_n
  4. Hitastig í knattspyrnuskjóli er mjög nálægt hitastigi utandyra og þ.a.l. koma dagar sem hamla iðkun vegna kulda. Reynslan varðandi Risann er nokkuð skýr, þegar lofthiti fer í -5 eða neðar eru æfingar hjá 10 ára og yngri felldar niður, eldri iðkendur klæða kuldann af sér. Ef horft er 5-6 ár aftur má segja að fjöldi niðurfelldra æfinga hjá yngstu iðkendunum sé óverulegur, innan við 1 æfing að meðaltali pr. iðkenda á vetri. Kvartanir vegna kulda í knattspyrnuskjóli koma ekki frá iðkendum, þær koma frá illa búnum foreldrum sem þrjóskast við að horfa á æfingar barna sinna. Hér má kannski bæta við svona meira í gamni en alvöru, kuldinn herðir. Einnig má geta þess að besta deildarkeppni í heimi, Premiership í Englandi er leikin yfir vetrartímann og þar fara alvöru keppnisleikir fram í frosti.19059551_771564536359674_8359453619944380422_n

Ofangreint er byggt á reynslu okkar FH-inga af rekstri Risans, tilboðum sem okkur hefur borist og áætlunum um rekstur og stofnkostnað hinna ýmsu gerða knattspyrnuaðstöðu. Hugleiðingar þessar ber að skoða út frá staðsetningu og veðurfari hér á suðvestuhorninu.

Að lokum vil ég fullyrða að Risinn, „tjaldið“, er lykilþáttur í frábærum árangri knattspyrnunnar í Fimleikafélaginu á 21. öldinni.

 

Aðrar fréttir