Evrópudeildin: FH – Inter Baki
Evrópuleikur á fimmtudaginn en þá kemur Inter Baki í heimsókn. Leikurinn er fyrri leikur liðanna í annarri umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.
Þessi leikur er gífurlega mikilvægur og þurfa strákarnir á öllum okkar stuðningi að halda. Leikurinn hefst kl 19:15 og er miðaverð er 2000 kr, 1500 kr fyrir Bakhjarla og 500 kr fyrir börn. Eins og alltaf er frítt fyrir iðkendur í FH. Almenn miðasala hefst kl 18:00 á leikdag en einnig verður forsala á miðum milli 14:00 til 16:00 á leikdag.
Nú fyllum við Kaplakrika! Allir á völlinn og látum í okkur heyra enda afar skemmtilegt að fara langt í Evrópukeppni eins og við FH-ingar þekkjum! ÁFRAM FH!
FH – Radio
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á morgun þegar FH mætir Fylkir.
Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net
Pyngjan
Í lokinn viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sleppt við það að standa í miðasölu röð á leikdag. Pyngjan er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina. Nú er hægt að nota Pyngjuna sem er app til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur.