Evrópudeildin: FH – SEINÄJOEN JK
Kæru FH-ingar.
Nú er komið að stórleik í Evrópudeildinni, en á fimmtudaginn koma Finnarnir í Seinajoen JK í heimsókn. Leikurinn er seinni leikur liðanna í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar, en fyrri leikurinn fór 0-1 fyrir FH.
Því er um að ræða gífurlega mikilvægan leik á fimmtudaginn og þurfa strákarnir á öllum okkar stuðningi að halda.
Leikurinn hefst kl 19:15 og er miðaverð er 2000 kr og 1500 kr fyrir Bakhjarla.
Nú fyllum við Kaplakrika! Allir á völlinn og látum í okkur heyra enda afar skemmtilegt að fara langt í Evrópukeppni eins og við FH-ingar þekkjum! ÁFRAM FH!