Evrópukeppni: FH – Lahti

Mótherji: Lahti
Hvar: Kaplakrikavöllur
Hvenær: Fimmtudaginn 19.júlí
Klukkan: 19:15
Miðaverð: 2.000 kr og 1.500 kr fyrir Bakhjarla

FH – Lahti í Kaplakrika, fimmtudaginn 19.júlí kl 19:15. Fyrri leikurinn endaði með 0-3 sigri FH í Finnlandi með mörkum frá Halldóri Orra, Steven Lennon opg Robbie Crawford. En eins og FHingar vita þá er bara hálfleikur í þessu einvígi. Það er því mikilvægt að strákarnir fái góðan stuðning í því að komast áfram í næstu umferð.

Leikurinn hefst klukkan 19:15. Á FH-pallinum verður fjör klukkutíma fyrir leik. Þar verða grillaðir hamborgarar, Wingmann vagninn á svæðinu ásamt útibúi frá Hafís. Þjálfarar í yngriflokkum verða með knattþrautir við pallinn.

Allir á völlinn og áfram FH! #ViðerumFH

Aðrar fréttir