FH 80 ára í dag

FH 80 ára í dag

Fimleikafélag Hafnarfjarðar er 80 ára í dag. FHingum nær og fjær er óskað til hamingju með daginn og farsældar á komandi árum.
FH.is minnir FHinga á frábæra afmælishátíð sem hefst kl 17 í dag og er fram á rauða laugardags-nótt!

Dagskráin er sem hér segir:

Afmælishátíð 15. – 17. október

Fimmtudagur

Kl. 17:00 Afmæliskaffi í boði Aðalstjórnar FH

Kl. 18:30 Grillaðir hamborgarar á sanngjörnu verði.

Kl. 18:45 Sigurjón Brink tekur lagið

Kl. 19:20 Ávarp formanns FH

Kl. 19:25 Kynning leikmanna, LJÓSASHOW

KL. 19:30 Stórleikur FH-Vals – frítt á leikinn í boði Rio Tinto Alcan

Í hálfleik verður boðið uppá “Bónus-skotið”. MATARKÖRFUR í verðlaun.

 

Föstudagur
Diskótek fyrir ungmenni
Páll Óskar heldur uppi fjörinu frá kl 20 – 23:30

– kostar 1.000 krónur . Góð gæsla og og fríar rútur í hverfi Hafnarfjarðar kl. 23.30.

 

Laugardagur
Hátíðarkvöldverður og dansleikur
– verð 4.900 kr

Veislustjórn í höndum fréttamannsins Jóhönnu Vigdísar Hjaltadóttur

Ræðumaður kvöldsins verður FHingurinn Gunnar Svavarsson bæjarfulltrúi

<

Aðrar fréttir