
FH – Afturelding (N1 mót karla í handbolta)
Fyrsti leikur vetrarins í N1 deild karla.
Kaplakrika fimmtudaginn 30. September kl. 19:30
Húsið opnar 18:30 þar sem fyrrum leikmenn Aftureldingar, þeir Örn Ingi Bjarkason og Bergsveinn Bergsveinsson, taka vel á móti öllum fhingum og stuðningsmönnum Aftureldingar með eldheitum hamborgurum beint af grillinu í samstarfi við KjötKompaní og Hunt’s.
Engin eldamennska heima, bara borgarar og brjáluð stemmning í Kaplakrika.
Matti og Draugabanarnir sjá um alvöru börger stemningu og það verður sko engin dinner tónlist þar á ferð.
Mætum á völlinn og skemmtum okkur saman.