FH – Akureyri – 2. hluti

FH – Akureyri – 2. hluti

FH – Akureyri, föstudaginn 29. apríl kl. 20:15

Framundan er leikur 2 í úrslitaviðureign FH og Akureyri sem af mörgum
eru talin tvö bestu lið landsins í dag.  Það verður mikið um dýrðir
þegar leikur heft í Kaplakrika föstudaginn 29. apríl kl. 20:15.

Miðasala hefst kl. 17:00

Almenn upphitunardagskrá hefst kl. 19:00

ÚRVALSDEILDIN GRILLAR
Meistaraflokkur karla í knattspyrnu hitar upp fyrir sumarið og grillar hamborgara að hætti bikarmeistara.

BRÆÐUR BERJAST
Jón Jónsson og Friðrik Dór leiða saman hesta sína og úr verður alvöru tónlist beint frá hjartanu.

GRILLUM AÐ LEIKSLOKUM
Eftir leik verður grillveisla eins og þær gerast bestar og tónlistin með borðhaldinu verður kokkuð af Júlladiskó.
Miðaverð á grillveisluna er kr. 2.500 (kr. 2.000 fyrir bakhjarla).

KOMDU Í LJÓS
Það verður mikið um dýrðir þegar Jói Run skellir í fluggírinn með ljósasjóvi og margmiðlun á heimsmælikvarða.

Miðaverð á leikinn: kr. 1.500, frítt fyrir 15 ára og yngri.

Auglýsing á FH TíVí.

         

Aðrar fréttir