FH beið lægri hlut í Garðabæ

FH beið lægri hlut í Garðabæ

FH beið lægri hlut fyrir Stjörnunni 31:30, í
N1-deild kvenna í handknattleik en liðin áttust við í Mýrinni í dag.
Staðan í hálfleik var, 20:11, Stjörnukonum í vil.

Hjá FH var
Ragnheiður Rósa Guðmundsdóttir langatkvæðamest en hún skoraði 12 mörk
og þær Ingibjörg Pálmadóttir og Berglind Ósk Björgvinsdóttir gerðu 5
mörk hver.

Esther
Magnúsdóttir skoraði 6 mörk fyrir Stjörnuna og þær Elísabet
Gunnarsdóttir, Jóna Sigríður Halldórsdóttir og Jóna Margrét
Ragnarsdóttir gerðu 5 mörk hver.

Aðrar fréttir