FH – Breiðablik á sunnudag kl 20:00

FH – Breiðablik á sunnudag kl 20:00

Mótherji: Breiðablik
Hvar: Kaplakrikavöllur 
Hvenær: Sunnudaginn 21.júní klukkan 20:00  

Það verður toppslagur í Pepsi-deildinni á sunnudaginn þegar við FH-ingar fáum Breiðablik í heimsókn í Kaplakrika. FH á toppnum með 19 stig og Breiðablik í öðru sæti með 18 stig. Stuðningurinn hefur verið mjög góður í síðustu leikjum og vonandi verður áframhald á honum því strákarnir þurfa svo sannarlega á stuðningnum að halda. Allir á völlinn og áfram FH!

FH – Radio 

Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á morgun þegar FH mætir Breiðablik. 
Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net 

IMG_2124

Pyngjan 

Í lokinn viljum við benda FH-ingum á að nú geta allir sleppt við það að standa í miðasölu röð á leikdag. Pyngjan er ný greiðsluleið fyrir Pepsi-deildina. Nú er hægt að nota Pyngjuna sem er app til að kaupa miða á heimaleiki nokkurra félaga í Pepsi-deild karla og er FH þar á meðal. Hér er hægt að kynna sér þetta betur.  

11014939_921601731196372_4605329185026370183_n

Aðrar fréttir