FH – Fjölnir

Mótherji: Fjölnir
Hvar: Kaplakrikavöllur
Hvenær: Mánudaginn 22.maí
Klukkan: 19:15

Næsti leikur FH er á mánudaginn þegar við fáum Fjölni í heimsókn í Kaplakrika. Þetta verður hörkuleikur og mikilvægt að strákarnir fái góðan stuðning. Fyrir leik og í hálfleik verða grillaðir hamborgar og stuð á pallinum góða. Mætum tímanlega á völlinn og látum vel í okkur heyra. Allir á völlinn og áfram FH!

BAKHJARLAR:
Við munum halda áfram með það fyrirkomulag sem var í Sjónarhól í fyrra. Það er að segja, salurinn opnar fyrir Bakhjarla klukkutíma fyrir leik þar sem matur verður í boði ásamt því að einhver úr þjálfarateyminu og jafnvel gestir mæta á svæðið og fara yfir leikinn sem framundan er. Með þessu vonumst við til þess að fleiri Bakhjarlar mæti tímanlega á völlinn og drekki í sig stemninguna. Í hálfleik verður svo boðið upp á kaffi.

FH – Radio:
Okkar menn í FH – Radio verða að sjálfsögðu á vellinum á mánudag. Slóð á útsendinguna er á facebook síðu FHingar.net

Aðrar fréttir