FH-Fram Olísdeild karla

FH-Fram Olísdeild karla

Mánudaginn 17 nóvember kl: 19.30 er skyldumæting í Kaplakrika.

Það var frábær sigur í Vestmannaeyjum síðastliðið fimmtudagskvöld sem kom FH  í þriðja sæti Olísdeildarinnar. Með sigri á mánudag komumst við enn ofar í töflunni og það ætlum við okkur.

Með þínum stuðningi og þinni nærveru eru möguleikar á að markmiðið náist.

 

Komdu í Krikann og taktu alla sem þú þekkir með þér, það verður stemmning og skemmtun sem enginn vill missa af.

 

Miðaverð:

1.000 kr fyrir fullorðna

Frítt fyrir 15 ára og yngri

 

Minnum á að skráning í Mugg er í fullum gangi (hægt að skrá sig á leikdag). Ýmis fríðindi í boði fyrir Muggara.

 

Mætum snemma og sýnum strákunum stuðning sem þeir eiga skilið !

 

 

Áfram FH

Aðrar fréttir