FH – Genk 22. ágúst kl 18:00
Kæru FH-ingar
Á fimmtudaginn er einn stærsti leikur í sögu Fimleikafélagsins. Þá kemur KRC Genk frá Belgíu í heimsókn í Kaplakrika.
Leikurinn er liður í undankeppni Evrópudeildarinnar og er þetta fyrri leikurinn í einvíginu. Liðið þarf á góðum stuðningi að halda, en leikurinn hefst klukkan 18.00 á fimmtudag. Forsala hefst miðvikudaginn 21. ágúst kl 13:00 hér í Kaplakrika og hvetjum við alla til þess að tryggja sér miða strax.
Fyllum völlinn og styðjum strákana til sigurs!
Hér má sjá Facebook viðburðinn fyrir leikinn – Er þú ekki örugglega vinur FH-ingar.net á Facebook?
https://www.facebook.com/events/179373338912341/
FH á Instagram – Ert þú ekki að elta okkur?