FH – Grótta sýnt á SportTV á miðvikudag

FH – Grótta sýnt á SportTV á miðvikudag

Hið frábæra framtak Hilmars Þórlindssonar og félaga á SportTV mun vera
með beinar útsendingar frá Ragnarsmótinu sem hefst á
morgun, miðvikudag og verður fram á laugardag. Leikur FH og Gróttu
verður sýndur kl 20 á slóðinni www.sporttv.is

Ragnarsmótið er árlegt æfingamót sem haldið er stuttu fyrir Íslandsmót á haustin. Mótið er þannig uppsett og verða allir leikir sýndir á SportTV:

Ragnarsmótið 2009 verður haldið 9.-12.september nk.

Um er að ræða 20 ára afmælismót og ætlar Selfoss að gera alla umgjörð sem glæsilegasta.

Riðlarnir eru eftirfarandi:

A Riðill – Akureyri, Selfoss og Stjarnan
 
B Riðill – FH, Grótta og Valur

Leikjaplanið er eftirfarandi:

Miðvikudagur 9. sept:

Selfoss – Stjarnan kl. 18:30

FH – Grótta kl. 20:00

 

Fimmtudagur 10. sept:

Valur – FH kl. 18:30

Selfoss – Akureyri kl. 20:00

 

Föstudagur 11. sept:

Akureyri – Stjarnan kl. 18:30

Grótta – Valur kl. 20:00

 

Laugardagur 12. sept:
Leikur um 5 sæti kl. 16:00

Leikur um 3 sæti kl. 18:00

Leikur um 1 sæti kl. 20:00
 
Auk farandbikars sem veittur er fyrir sigur á mótinu og er í vörslu
Stjörnunnar síðan í fyrra verða veitt verðlaun fyrir fyrsta, annað og
þriðja sæti á mótinu.

Einnig munu verða veitt verðlaun fyrir: Besta leikmann, besta
sóknarmann, besta varnarmann, besta markmann og markahæsta leikmann.

Sérstök nefnd mun sjá um valið.

Aðrar fréttir