
FH hafði betur í spennuleik!


Kaplakriki, laugardagurinn 27. september 2008 kl. 16:00
FH stelpur sigruðu áðan stöllur sínar úr HK í fyrsta heimaleik vetrarins. Leikurinn var í járnum frá fyrstu mínútu og fór að lokum svo að stelpurnar okkar unnu 25-24. Í hálfleik var staðan 12-12.
Áhorfendur voru um 200 og getur það ekki talist annað en mjög góð mæting þar sem fótboltastrákarnir urðu Íslandsmeistarar á sama tíma!
Markaskorarar FH:
Hafdís Inga Hinriksdóttir 10
Birna Íris Helgadóttir 3
Hildur Þorgeirsdóttir 3
Sigrún Gilsdóttir 2
Guðrún Helga Tryggvadóttir 2
Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 2
Ingibjörg Pálmadóttir 2
Gunnur Sveinsdóttir 1
Helga Vala Jónsdóttir varði 26 skot í FH-markinu.
Markaskorarar HK:
Pavla Kúlíkova 10
Elva Björg Arnarsdóttir 9
Arna Sif Pálsdóttir 2
Brynja Magnúsdóttir 2
Jóna Sigríður Halldórsdóttir 1
Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir varði 21 skot í HK-markinu.
Dómarar voru Ómar Ingi Sverrisson og Þorlákur Kjartansson.

