FH-HK 14 nóv, matur fyrir leik

FH-HK 14 nóv, matur fyrir leik

 Fimmtudaginn 14. nóvember mun FH mæta HK í Olísdeild karla í afar
 mikilvægum leik fyrir FH – liðið. Fyrir áhugasama FH – inga verður í boði
 að fá afar flotta máltíð á vægu verði frá Kjötkompanínu.
 Áætlað er að bjóða upp á mat fyrir alla heimaleikina sem eru eftir fyrir áramót. Að þessu
 sinni verður boðið upp á kjötbollur, karftöflur, grænmeti og brauð.
 Einnig verður hægt að kaupa guðaveigar á væguverði.

 Verði er stillt í algert hóf.
 Fullorðnir 1200 krónur.
  Bakhjarlar 900 krónur.

 Börn undir 16 ára 600 krónur.

 Markmiðið með þessu er að efla ennfrekar umgjörðina í kringjum
 liðið okkar og veita fjölskyldum, vinum, stuðningsaðilum og stuðningsmönnum færi
 á að hittast fyrir leiki og spjalla um leikinn, lífið og tilveruna.

 Leikurinn hefst kl. 19:30 og mun húsið því opna í mat kl. 18:45. (mætið tímanlega )
 Gengið verður frá greiðslum við komu.

 Til þess að taka þátt í þessu þarf að skrá sig og má finna
 upplýsingar um það hérna að neðan verðu.

 Hægt er að skrá sig í mat með því að senda póst á sverrir@fh.is og
 rosi@fh.is og verður hægt að skrá sig fram að hádegi á miðvikudag.

Aðrar fréttir