FH – HK | Pepsi Max deildin fer af stað!

Mótherji: HK
Hvar: Kaplakrika
Hvenær: Laugardaginn 27.apríl
Klukkan: 16:00

Fyrsti heimaleikur sumarsins er á laugardaginn þegar við fáum HK í heimsókn í Kaplakrika. Það verður eins og síðustu ár opnað á pallinum klukkustund fyrir leik þar sem verða seldir FH-borgararnir frægu og kaldir drykkir verða seldir.

Minnum Bakhjarla á að mæta tímanlega á völlinn enda gæti myndast mikil röð við að sækja kortin.

Nú mæta allir á völlinn og ekki bara mæta, heldur láta vel í sér heyra. Vinnum þennan leik saman og höldum ótrauð áfram!

Aðrar fréttir