FH í frjálsum Bikarmeistarar utanhúss
Þrefaldur sigur FH Í Bikarkeppni FRÍ og 2. sæti hjá 15 ára og yngri.
Bikarkeppni FRÍ fór fram á Sauðárkróki 5.-6. júlí í góðu veðri og var spennandi keppni allt til síðustu greinar en svo fór að FH vann þrefaldan sigur, en FH vann bæði stigakeppni karla og kvenna í aðalkeppni Bikar. Ísold Sævarsdóttir setti mótsmet og aldurflokkamet í 400 m hlaup og persónleg met féllu hægri og vinstri i. Til hamingju FH!
Í Bikarkeppni 15 ára og yngri og varð FH í 2. sæti þar eftir harða keppni við ÍR og Breiðablik og mörg persónuleg met féllu. Ljóst er að framtíð FH er björt!
Öll úrslit má sjá hér: Bikar aðal og Bikar 15 ára og yngri
Fleiri myndir má sjá á facebooksíðu FH